CALGEL

ICELAND

©Calgel Ísland 2011     Bæjarhraun 6, 220 Hafnarfirði       Sími: 552-1200            Netfang: gudrun@galleriutlit.is
Forsíða

Lituð gel

Fáanleg í 4 og 10 gramma dósum

Hægt er að velja um yfir 60 liti af gelum sem hægt er að setja bæði sem styrkingu yfir náttúrulegu neglurnar eða yfir framlengdar neglur, hvort sem notuð eru naglamót eða toppar. Ekki er þörf á að grunna neglur með primer eða öðru geli og hægt er að fjarlægja lituðu gelin jafn auðveldlega og þau glæru með Calaway.

Naglalökk fást í sömu litum og gelin, og eru mjög vinsæl söluvara fyrir viðskiptavini sem vilja geta haldið þeim við sjálfir þegar gelið fer að vaxa frá naglaböndunum.

Þessi gel eru mjög vinsæl á táneglur!

 

Ráðleggingar um notkun: Byrjaðu á að bera örþunnt lag af gelinu yfir alla nöglina, taktu svo meira gel í pensilinn og leyfðu því að fljóta yfir í þykkara lagi. Hertu gelið í ljósinu í 3 mínútur og endurtaktu svo. Í lokin er gott að setja þunnt lag af clear gel til að tryggja enn betri endingu og glans, eða jafnvel super clear gel ef liturinn er mjög ljós.

Calgel nailART  litir